Risvandamál eru algeng og þau hafa áhrif á ótalmarga karla um allan heim. Þau eru einnig þekkt sem ristruflanir og fela í sér skort á getu til að fá eða viðhalda stinningu fyrir kynmök. Algengast er að þetta hafi áhrif á karla eldri en 40 ára en getur komið fram hjá körlum á öllum aldri vegna líkamlegs eða andlegs ástands.
Risvandamál geta haft veruleg áhrif á lífsgæði karla og leitt til minna sjálfsálits og sjálfstrausts. Þótt risvandamál séu algeng leita margir karlar sér ekki aðstoðar vegna fordóma eða skammar.
Hvað eru risvandamál?
Risvandamál koma yfirleitt fram þegar blóðflæði til getnaðarlimsins er skert þannig að stinning næst ekki. Bæði líkamlegir og andlegir þættir geta valdið því, þ.m.t. hormónaójafnvægi, afbrigðilegar æðar og lyfjaerfðafræðilegir þættir. Risvandamál geta verið langvinn eða tímabundin og þau geta valdið skertum lífsgæðum hvað varðar líkamlega heilsu og mannleg samskipti.
Hringlaga gúanósín mónófosfat (cGMP) ferlið er lífeðlisfræðilegt lykilferli sem tekur þátt í stjórnun blóðflæðis fyrir stinningu. Losunin á nituroxíði í getnaðarlimnum við kynferðislega örvun örvar framleiðslu á cGMP. Við það slaka sléttvöðvarnir í æðum getnaðarlimsins sem veldur auknu blóðflæði.
Hversu algeng eru risvandamál?
Risvandamál eru algeng kynheilbrigðisvandamál sem hafa áhrif á karla á öllum aldri. Talið er að yfir 50% karla á aldrinum 40 til 70 ára séu með risvandamál. Þau geta þó komið fram á hvaða aldri sem er og eru ekki endilega hluti af því að eldast.
Ýmsir þættir geta haft áhrif á algengi risvandamála, þ.m.t. lífsstíll, sjúkdómar og almennt heilsufar. Vegna fordóma í tengslum við greiningu og meðferð risvandamála getur algengið verið hærra en áætlað er.
Risvandamál í tölum í Bretlandi
Algengi risvandamála getur verið mismunandi eftir svæðum. Algengi risvandamála um allan heim hefur verið metið í ýmsum rannsóknum, með miklum breytileika í mati á gögnum milli mismunandi aldurshópa. Erfitt getur verið að ákvarða algengi og byrði risvandamála vegna fjölda karla sem ekki hafa verið greindir eða fengið meðferð.
Í rannsókn þar sem mat var lagt á algengi sjálfskráðra risvandamála hjá fullorðnum í Bretlandi kom í ljós að algengið er mikið. Meira en tveir af hverjum fimm körlum 18 ára eða eldri upplifa risvandamál. Rannsakendur komust einnig að því að algengi risvandamála er 1,6-falt hærra hjá körlum 40 ára eða eldri heldur en hjá körlum yngri en 40 ára.
Merki um undirliggjandi heilsufarsástand
Risvandamál geta oft verið merki eða einkenni undirliggjandi sjúkdóma. Þeim sem eru með risvandamál er ráðlagt að leita ávallt til læknis til að athuga hvort undirliggjandi sjúkdómar séu til staðar.
Risvandamál geta einkum verið fyrstu merki um:
• Háan blóðþrýsting
• Blóðfituhækkun
• Sykursýki*
• Hjarta- og æðasjúkdóma
• Lifrarsjúkdóm eða áfengissýki
• Nýrnasjúkdóm
• MS-sjúkdóm (heila- og mænusigg)
Rétt ber að nefna að karlar með sykursýki eru tvisvar til þrisvar sinnum líklegri til að upplifa risvandamál.
Að auki getur andlegt ástand, eins og þunglyndi og kvíði, einnig átt þátt í að karlar þrói með sér risvandamál.
Þótt risvandamál séu algeng meðal karla um allt Bretland eru ýmsir þættir sem þarf að huga að þegar einstaklingsmiðuð meðferðaráætlun er þróuð. Sem betur fer eru ýmsir meðferðarmöguleikar í boði til að meðhöndla risvandamál.

